top of page

Alþjóðlegt samstarf

UNESCO, GGN, EGN og norrænt samstarf

​

Jarðvangar (e. geoparks) eru einstaklega gott dæmi um starfsemi sem byggir á grasrótarstarfi í fjölþjóða samstarfi. Hugmyndin kviknaði meðal jarðfræðinga sem þótti náttúruvernd einkennast um of af áherslu á lífríkið. Íslensku jarðvangarnir taka virkan þátt í samstarfi innan UNESCO, Global Geoparks Network (GGN) og European Geoparks Network (EGN), auk norræns samstarfs.

​

Auk EGN starfa svæðisbundin tengslanet jarðvanga í Asíu (APGN, stofnað 2008) og í Rómönsku Ameríku og Karíbahafi (GeoLAC, stofnað 2017), og á síðustu árum hafa einnig verið stofnuð tengslanet í Kanada og Afríku.

UNESCO 

UNESCO var í formlegum tengslum við Tengslanet evrópskra jarðvanga allt frá 2001 en 17. nóvember 2015 samþykkti aðalráðstefna UNESCO samhljóða að stofna þriðju staðarskrá samtakanna; UNESCO Global Geoparks, til viðbótar við Heimsminjaskrána (World Heritage List) frá 1972 og Verndarsvæði lífhvolfa, einnig nefndir Vistvangar  (Man and Biosphere, MAB) frá 1971. Um leið urðu allir 120 jarðvangarnir sem tilheyrðu þá Tengslaneti hnattrænna jarðvanga (GGN) hluti af UNESCO Global Geoparks.

UNESCO Global Geoparks →

geopark_blue_eng.png

Global Geoparks Network

GGN (Tengslanet hnattrænna jarðvanga) var stofnað 2004 af 17 evrópskum og 8 kínverskum jarðvöngum undir handarjaðri UNESCO en þremur árum áður hafði EGN samið um samstarf við UNESCO. Í dag eru 241 UNESCO-jarðvangar í 51 landi.

​

Innan GGN starfar ráðgjafarnefnd (GGN Advisory Committee) þar sem hvert aðildarland á einn fulltrúa. Nefndin fundar að jafnaði annan hvern mánuð á fjarfundi og fjallar um málefni jarðvanga. Fulltrúi Íslands í nefndinni er Þuríður H. Aradóttir Braun. Innan GGN starfa jafnframt vinnuhópar sem stuðla að auknu samstarfi og sýnileika jarðvanga um allan heim. Annað hvert ár heldur GGN alþjóðlega ráðstefnu í samstarfi við UNESCO.

Global Geoparks Network →

European Geoparks Network

EGN (Tengslanet evrópskra jarðvanga) var stofnað árið 2000 af fjórum jarðvöngum; Haute-Provence í Frakklandi, Vulkaneifel í Þýskalandi, Lesvos í Grikklandi og Maestrazgo á Spáni. Núna eru þeir 118 UNESCO-jarðvangar í 28 Evrópulöndum. Rekja má upphaf hreyfingarinnar til fundar sem haldinn var í Digne les Bains 1991 þar sem undirrituð var svokölluð Digné yfirlýsing um Minni jarðarinnar (International declaration of the rights of the memory of the Earth.

​

Hver jarðvangur á tvo fulltrúa í EGN Coordination Committee en hún fundar tvisvar á ári, á vorin í einhverjum jarðvangi netverksins en haustfundurinn er fjarfundur. Annað hvert ár er ráðstefna netverksins og er hún öllum opin. Hitt árið er haldin alþjóðleg jarðvangsráðstefna á vegum GGN.

European Geoparks Network →

Norrænt samstarf

Á Norðurlöndunum fimm eru samtals 16 UNESCO-jarðvangar (e. UNESCO Global Geoparks). Þeir hafa í gegnum árin myndað óformlegan samstarfsvettvang um sameiginleg málefni og verkefni.

​

Finnland (5): Rokua, Lauhanvuori-Hämeenkangas, Saimaa, Salpausselkä og Lappajärvi. Finnsku jarðvangarnir einkennast af minjum frá ísöld og stórum stöðuvatnakerfum.

Noregur (5): Gea Norvegica, fyrsti jarðvangur Skandinavíu, ásamt Magma, Trollfjell, Sunnhordland og Fjordkysten. Jarðfræðin er fjölbreytt, allt frá tungllíku landslagi til djúpra fjarða og fornra fellingafjalla.

Danmörk (3): Odsherred, Vestjylland og Det Sydfynske Øhav. Þeir tengjast landmótun í lok síðustu ísaldar og menningarsögu eyjanna.

Ísland (2): Katla jarðvangur og Reykjanes jarðvangur. Báðir einkennast af eldvirkni, jarðhita og flekaskilum.

Svíþjóð (1): Platåbergens Geopark í Västergötland, sem varð fyrsti UNESCO-jarðvangur Svíþjóðar árið 2022. Hann er þekktur fyrir flöt stapafjöll.

​

Formlegt norrænt samstarf hófst með fundi í Reykjanes jarðvangi í febrúar 2017. Síðan hafa jarðvangarnir hist reglulega, á staðnum og á fjarfundum.

bottom of page