Nýtt fréttabréf frá félagi evrópskra jarðvanga (EGN) komið út
- 26 minutes ago
- 1 min read
Félag evrópska jarðvanga (European Geoparks Network – EGN) hefur gefið út fréttabréf nr. 29, þar sem farið er yfir helstu verkefni, samstarf og árangur UNESCO jarðvanga í Evrópu á tímabilinu janúar–maí 2026.
Fréttabréfið ber yfirskriftina UNESCO Global Geoparks in Europe: Model territories for sustainability, resilience and future perspectives.
Í fréttabréfinu má meðal annars lesa um:
ný verkefni og samstarfsverkefni jarðvanga víðs vegar um Evrópu,
góð dæmi um sjálfbæra þróun, fræðslu og verndun jarðminja,
nýsköpun og samfélagsverkefni innan jarðvanganna,
fréttir af starfi Evrópska jarðvangakerfisins og samstarfi þess við UNESCO.
Fréttabréfið veitir góða innsýn í fjölbreytt starf evrópskra UNESCO jarðvanga og sýnir hvernig þau vinna saman að því að efla náttúruvernd, fræðslu, rannsóknir og sjálfbæra byggðaþróun.
📎 Fréttabréfið fylgir þessari frétt sem viðhengi fyrir áhugasama lesendur.




Comments