top of page

Vorfundur Tengslanets evrópskra jarðvanga

  • Apr 8
  • 1 min read

53. fundur EGN-CC (European Geoparks Network Coordination Committee) var haldinn 24. – 26. mars 2026 í Geopark Karawanken Karavanke á landamærum Austurríkis og Slóveníu . Þessir fundir fara með ákvörðunarvald tengslanetsins, en það er rekið án launaðra starfsmanna. Nefndin heldur tvo fundi á ári, en síðan 2023 hefur haustfundurinn verið á netinu.  Að þessu sinni einkenndu kosningar fundinn en þau Sopie Justice frá Frakklandi og Babbis Fassoulas frá Grikklandi, sem hafa stýrt netverkinu undanfarin fjögur ár, gáfu ekki kost á sér til endurkjörs. Í stjórnartíð þeirra hefur verið unnið ötullega að auknu gagnsæi í starfseminni, en nú taka við keflinu Ilias Valiakos frá Grikklandi og Cristian Ciobanu frá Rúmeníu.  Auk þess voru kosnir fulltrúar í EGN-AC (European Geoparks Network Advisory Committee), en hún undirbýr mál fyrir EGN-CC. Þuríður H. Aradóttir Braun var meðlimur hennar 2022-2024.


Fundinn sóttu fastafulltrúar íslensku jarðvanganna í nefndinni, þau Daníel Einarsson og Þuríður H. Aradóttir Braun frá Reykjanes jarðvangi, og Jóhannes M. Jóhannesson og Sigurður Sigursveinsson frá Kötlu jarðvangi.


Comments


bottom of page