Alþjóðlega UNESCO jarðvangsráðstefnan í september 2025 í Chile
- sigurdur5
 - Jun 26
 - 1 min read
 
Í byrjun september verður haldin 11. alþjóðlega UNESCO jarðvangsráðstefnan í Kütralkura Geopark í Chile. Ráðstefnan verður sett mánudaginn 8. september og lýkur föstudaginn 12. september. Fulltrúar beggja íslensku hnattrænu UNESCO jarðvanganna munu sækja ráðstefnuna.
Ráðstefnan er öllum opin og í aðdraganda ráðstefnunnar fundar UNESCO nefndin sem fer m.a. yfir skýrslur úttektaraðila varðandi endurvottun núverandi jarðvanga, og umsóknir um nýja hnattræna jarðvanga.
Nánari upplýsingar má nálgast á þessari vefsíðu: Conferencia Internacional sobre Geoparques Mundiales de la UNESCO 2025.





Comments