top of page

Vottun Kötlu jarðvangs

  • 2 days ago
  • 1 min read

Hnattrænir UNESCO jarðvangar gangast undir úttekt tveggja erlendra sérfræðinga á fjögurra ára fresti. Sl. sumar var komið að þessu hjá Kötlu jarðvangi og í gær, 27. apríl 2026, var athöfn í höfuðstöðvum UNESCO í París þar sem 12 nýir hnattrænir UNESCO jarðvangar voru boðnir velkomnir í hóp þeirra 229 sem fyrir voru, og 44 fengu skjal til staðfestingar á áframhaldandi vottun, þar á meðal Katla jarðvangur, til næstu fjögurra ára.



Fyrir hönd Kötlu veitti skjalinu viðtöku Kristín Halla Kristinsdóttir í fastanefnd Íslands hjá UNESCO, úr hendi Kristof Vandenberghe hjá UNESCO. Myndirnar tók Sacha Heron

Kristof afhendir Kristínu Höllu vottunarskjalið
Kristof afhendir Kristínu Höllu vottunarskjalið
Hópmynd frá athöfninni í höfuðstöðvum UNESCO í París
Hópmynd frá athöfninni í höfuðstöðvum UNESCO í París

Comments


bottom of page