Fundur í Íslandsnefndinni 14.4.2026
- Apr 16
- 3 min read
Íslandsnefnd hnattrænna UNESCO jarðvanga
Fundur haldinn á Teams 14.4.2026, kl. 14.00
Mætt eru:
· Dagný Arnarsdóttir Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneyti
· Daníel Einarsson Reykjanes jarðvangi
· Fanney Ásgeirsdóttir Náttúruverndarstofnun
· Helen Hannesdóttir Ferðamálastofu
· Hlédís Sveinsdóttir Vistvanginum á Snæfellsnesi
· Lovísa Ásbjörnsdóttir Náttúrufræðistofnun
· Nína Aradóttir Náttúrufræðistofnun
· Ragnhildur Sigurðardóttir Snæfellsnesþjóðgarði
· Rannveig Ólafsdóttir Félagi landfræðinga/Ferðamálafræði HÍ
· Sigurður Sigursveinsson Háskólafélagi Suðurlands/Kötlu jarðvangi
· Torfi Stefán Jónsson Þingvallaþjóðgarði
· Uggi Ævarsson Minjastofnun
· Þorsteinn Sæmundsson Jarðfræðafélaginu
· Þuríður H. Aradóttir Reykjanes jarðvangi/Markaðsstofu Reykjaness
Forföll hjá Landvernd, íslensku UNESCO nefndinni og Samstarfsnefnd opinberu háskólanna.
Sigurður formaður setti fund og bauð fundarmenn velkomna. Sérstaklega voru nýir fulltrúar í nefndinni boðnir velkomnar, frá Ferðamálastofu, Helen Hannesdóttir og þær Hlédís Sveinsdóttir og Ragnhildur Sigurðardóttir frá Vistvanginum á Snæfellsnesi. En í samráði við fulltrúa íslensku UNESCO nefndarinnar var ákveðið að bjóða svæðinu á Snæfellsnesi aðild að Íslandsnefndinni, en þar er um að ræða fyrsta UNESCO Man and Biosphere svæði á Íslandi, en slík svæði hafa fengið íslenska nafnið vistvangur, og er Snæfellsjökulsþjóðgarður kjarnasvæði innan marka vistvangsins.
Að því loknu var gengið gengið til boðaðrar dagskrár sem send hafði verið með tölvupósti 10. apríl s.l.
Frétttir af starfi jarðvanganna
· Katla jarðvangur
Jóhannes verkefnastjóri forfallaðist vegna jarðfræðikynningar hans fyrir starfsfólk Hótel Geirlands á sama tíma.
Kynningu Jóhannesar er að finna hér.
· Reykjanes jarðvangur
Daníel Einarsson stiklaði á stóru í starfi jarðvangsins undanfarna mánuði. Jarðvangurinn hefur gert fræðsluáætlun fyrir svæðið varðandi almyrkvann á sólu 12. ágúst, með stuðningi ýmissa aðila, m.a. GeoCamp sem er stofnaðili jarðvangsins. Sævar Helgi Bragason (Stjörnu-Sævar) mun heimsækja alla grunnskóla svæðisins og tekist hefur að fjármagna kaup á stjörnukíkjum fyrir grunnskólana.
Gallup hefur undanfarið unnið að vitundarkönnun á svæðinu um jarðvanginn og verða niðurstöður kynntar á næstu dögum. Annars er mikil áhersla á fræðslu í starfi jarðvangsins þessi misserin, fjöldi erlendra samstarsverkefna sem gera starfsfólki skólanna kleift að heimsækja skóla og jarðvanga erlendis, auk verkefnisins um UNESCO skóla á Reykjanesi.
Unnið hefur verið að því að bæta ferla við uppbyggingu áfangastaða og viðhald þeirra.
Jarðvangurinn hefur lagt áherslu á kynningarstarf innan jarðvangsins, m.a. í ljósi komandi sveitarstjórnarkosninga.
Málþing á Hvolsvelli 29. apríl 2026
Daníel greindi frá undirbúningu málþingsins en endanleg dagskrá verður tilbúin á næstu dögum. Að því standa Náttúruverndarstofnun, Náttúrufræðistofnun, Minjastofnun, Katla jarðvangur og Reykjanes jarðvangur. Heiti þess er Hvers virði er náttúran? Hugmyndin kviknaði sl. haust í ljósi þess að þá voru 10 ár frá því að staðarskrá UNESCO um hnattræna jarðvanga var stofnuð, 15 ár frá stofnun Kötlu jarðvangs, og ný Náttúruverndarstofnun var sett á laggirnar með höfuðstöðvar innan Kötlu jarðvangs. Uggi Ævarsson vakti athygli á alvöru viðfangsefnis málþingsins í ljósi áforma um ýmsar stóframkvæmdir. Nefndarmenn voru hvattir til að sækja ráðstefnuna.
· Hlekkur á viðburðinn: https://fb.me/e/6wiL2RlD4
Ráðstefna Evrópskra jarðvanga í Saima 16.-18. september 2026
Þuríður kynnti ráðstefnuna og hvatti nefndarmenn til að sækja hana ættu þeir þess kost. Beint flug til Helsinki og tveggja tíma lestarferð til Lappeenranta þar sem ráðstefnan er haldin í ráðstefnumiðstöð og öll hótel í göngufæri við ráðstefnuna. Boðið er upp á dagskrá fyrir maka, einnig kynnisferð til Salpausselkä Geopark 1-2 daga fyrir ráðstefnuna.
· Hlekkur á ráðstefnuna og frekari upplýsingar: 18th International European Geoparks Conference
Nýr formaður Íslandsnefndarinnar
Eins og Sigurður kynnti á síðasta fundi nefndarinnar, í desember, lætur hann nú af formennsku í nefndinni. Þuríður H. Aradóttir Braun hefur gefið kost á sér til þessa verkefnis og tók hún við því á fundinum, og þakkaði Sigurði fyrir að hafa gegnt þessu starfi undanfarið.
Önnur mál
Lovísa Ásbjörnsdóttir tilkynnti að þetta væri hennar síðasti fundur þar sem hún væri að láta af störfum hjá Náttúrufræðistofnun og Nína Aradóttir tæki við. Sagðist mundu mæta á málþingið á Hvolsvelli í lok mánaðarins.
Fleira var ekki rætt og var fundi slitið kl. 14:45.
Ritun fundargerðar: Sigurður Sigursveinsson





Comments